Forsíða Fréttir Reynslusögur Tilboð Spurt og svarað Hafðu samband

ess_pastebitmap0004

ess_pastebitmap0008

Spurt og svarað

 

1.Hvernig á að nota Metasys?

Metasys inniheldur 100% grænt te extrakt (þykkni) í hylkjum. Taktu 2 hylki með morgunmat og 2 með hádegismat og minnst einu glasi af vatni með í hvert skipti ef þú villt grennast. Ekki nota Metasys hylkin seinnipartinn ef gleymist að taka það á tilsettum tímum. Það gæti truflað svefninn (í flestum tilfellum þó ekki alltaf) Þeir sem þurfa ekki að léttast en vilja njóta heilsufarslegra ávinninga og orkubætandi áhrif Metasys taka inn 2 hylki á morgnana og þá að sjálfsögðu með máltíð og minnst einu glasi af vatni.

 

2. Hversu fljótt má vænta þyngdartaps?

Klínísk rannsókn sýndi að inntaka á Metasys hylkjunum einum þ.e. 4 hylki á dag án þess að breyta mataræði og hreyfingu að þyngdartap er 3,5 kg að jafnaði á þremur mánuðum.

Sé áætluninni fylgt þ.e. matardagbók ásamt aukinni hreyfingu þá er þyngdartapið um 5 kg. fyrstu tvo mánuðina.

Metasys er þróað sem 90 daga áætlun og er oft ekki hægt að vænta mikils þyngdartaps fyrstu 4-6 vikurnar. Árangur er mjög einstaklingsbundinn, fer eftir líkamsgerð- og starfsemi. Oft eru þeir sem t.d. safna fitu frekar um miðjan líkamann fljótari að missa þyngd og ummál en þeir sem eru t.d. perulaga, en ath! ekki í öllum tilvikum.

Mikilvægt, gerðu 3 mánaða skuldbindingu og áætlun með Metasys, hreyfingu og mataræði.

 

3. Hvaða mataræði á ég að fylgja? Með Metasys fylgir matardagbók sem þú getur haft til hliðsjónar. Mikilvægast er að borða reglulega þá hraustlega á morgnanna, hæfilega í hádeginu, hóflega á kvöldin. Milli mála bitar séu helst ávextir, grænmeti, fræ eða hnetur. Forðast mikið unnin mat og skyndibitafæði. Metasys bendir á frábæra næringarþerapista:  Inga Kristjánsdóttir hún útskrifaðist sem næringarþerapisti CET júlí 2006 frá Institut for Optimal næring Kaupmannahöfn auk þess er hún einkaþjálfari. Inga er með starfstöð í Nýjabæ 2 hæð, verslunarmiðstöðinni Eiðistorgi, Seltjarnarnesi  þar sem hún tekur fólk í einkaráðgjöf um mataræði, næringarefni og hreyfingu. Inga hefur haldið fjölda námskeiða m.a. í verslun Yggdrasill Skólavörðustíg, einkafyrirtækjum, félagsamtökum og víðar. Hægt er að ná í Ingu í síma 8995020 eða ingakristjansdottir@hotmail.com

Einnig bendum við á Maríu Ísfold næringarþerapista frá CNM College for Natural Medicine,London auk þess hefur hún lokið 1 árs grunnnámi í næringarþerpíu hjá Institut for Optimal næring í Kaupmannahöfn. María hefur starfarð sem söluráðgjafi í heilsuverslunum bæði í Danmörku og á Íslandi.  Hægt er að ná í Maríu í síma 8655909 eða isfoldmaria@hotmail.com

Metasys hvetur alla sem eiga í vandræðum með aukakílóin eða önnur heilsufarsleg vandamál að nýta sér þjónustu á við næringarþerapíu sem er mjög góð viðbót til að efla heilsu, vellíðan, orku og andlegt heilbrigði.

 

4. Eru einhverjar aukaverkannir af Metasys hylkjunum

Ef Metasys er tekið inn án máltíðar og vökva er smá möguleiki að það gæti orsakað niðurgang og magapínu. Einnig gæti það haldið fyrir þér vöku ef það er tekið seint, sérstaklega í byrjun inntöku. Ef þú ert haldin einhverjum sjúkdómi þá mælum við ávallt með að þú hafir samráð við þinn lækni.

 

5. Mega barnshafandi konur taka inn Metasys?

Nei við ráðleggjum það ekki, fáið ávallt samþykki læknis um lífstílsbreytingu á meðgöngu. Konur með barn á brjósti er óhætt að taka inn Metasys en ráðleggjum við þeim að byrja fyrstu 10 dagana að taka inn að eins 2 hylki á dag og auka það svo.

 

6. Virkar Metasys jafn vel fyrir karlmenn?

Já það gerir það, of feitir karlmenn fá sama árangur af Metasys og eru oft fljótari að ná af sér fitubirgðum en konur.

 

7. Hverning virkar Metasys?

Metasys inniheldur 100% grænt te extrakt (þykkni), sem er vatnsmeðhöndlað (AQUEOUS EXTRACTION) sem tryggir hámarksnýtingu og áhrif plöntunnar sem hefur áhrif á hversu mikið líkaminn getur brennt af hitaeiningum. Græna te extraktið hjálpar þér við að losa uppsafnaða fitu. Græna te extraktið er einnig fullt af góðum andoxunarefnum og hinum heilnæmu katekólum sem hafa góð áhrif á úthald og orku, húð og talið geta varið gegn vírusum og fleirum sjúkdómum. Metasys færir þér léttari og orkumeiri líkama.

 

8. Í verslunum fæst grænt te sem er mun ódýrara en Metasys, get ég ekki notað það með sama árangri?

Metasys græna teið er unnið á einstakan hátt (aqueous extraction) sem er einstök meðhöndlun sem tryggir hámarksnýtingu eða u.þ.b. 90% af virkni plöntunar varðveitist. Nær allt grænt te á markaðinum er einnig ágætt og er venjulega duftformi og þurrkað sem gerir það að a.m.k 50% af eiginleikum tapast í vinnslunni. Metasys er grænt te-extrakt óoxað og ógerjað og inniheldur því öll efni græns tes í fullvirku formi. Athuga skal einnig að minni pakkinn af Metasys innheldur 120 hylki, innpakkað í þynnupakkningar sem tryggir að það varðveitist betur. Þannig spurningin er oft hvað kostar pr. hylki eða pilla og hversu virkt er það?

 

9.  Þegar ég hef náð kjörþyngd á Metasys get ég þá hætt að taka það inn? Svar:  Þegar kjörþyngd er náð og þú heldur áfram skynsamlegu mataræði og stundar reglulega hreyfingu þá ættir þú ekki að þurfa að taka inn Metasys. En mjög margir halda áfram að taka áfram Metasys þar sem flestir m.a. finna fyrir góðri orkubreytingu og minnkaðri nartþörf. Auk þess eru það mjög andoxunarríkt og heilsubætandi efni.

 

10. Þegar ég hóf inntöku á Metasys fann ég fyrir kláða og útbroti í húð? Það kemur fyrir að fólk finni fyrir þessu í byrjun þar sem Metasys er svo gríðarlega andoxunarríkt og þar af leiðandi mjög hreinsandi(detox) fyrir líkamann, þessi einkenni hverfa í nánast í öllum tilfellum eftir 10-20 daga inntöku og eftir 30-60 daga upplifir fólk mun betri húð. Metasys er mjög vinsælt á snyrtistofum í London þar sem það er selt sem besta bætiefnið til að yngja húðina. Hugmyndaleg skýring á andoxun er eins og járnbútur sem er ryðvarin og ryðgar síður eða frumur líkamans varðveitast betur ef þú tekur inn góð andoxunarefni eða þú skerð epli í tvennt og kreistir sítrónu yfir annan helminginn og það gulnar ekki en það sem óvarið morknar og verður fljótt dökkt gulleitt eða brúnt semsagt oxast (ryðgar). Sítrónan er andoxunarrík og ver eplið gegn oxun og það andoxað. Græt te er mörghundruð andoxunarríkara en sítróna ;-)  

 

11. Af hverju getur Metasys valdið svefntruflunum? Metasys er gríðarlega auðugt af katekólum, andoxunarefnum sem veldur aukinni brennslu í líkamanum. Það mætti líkja því ev. að þú færir út að hlaupa rétt fyrir háttinn þá þarftu að ná þér niður til þess að festa svefn, því mælum við með því að þú takir inn Metasys fyrri parts dags. Þó eru til einstaklingar sem geta tekið inn Metasys seinnipart dags án þess að það trufli svefninn en ávallt er ráðlegra að taka það inn fyrri partinn. Ath! Vegna vatnsmeðhöndlunar Metasys þá er mjög lítið af koffíní og taníni í því þannig það er aldrei orksökin fyrir svefntruflunum.

 

12. Ég er búin að taka inn Metasys í 2 mánuði og hef ekkert létts en þó er buxnastrengurinn orðin rýmri á buxunum? Samkvæmt vísindalegum rannsóknum þá brennir Metasys fitu fyrst og samkvæmt rannsóknum fer hún oftast fyrst af magasvæðinu. Haltu áfarm að taka inn Metasys það er mjög einstaklingsbundið hvenær fólk fer að missa þyngd, við erum svo misjöfn. Og hyggðu vel að hreyfingu og skynsamlegu mataræði. Jákvæð hugsun og gott bókhald yfir mataræði í dagbók er snilldar ráð!

 

13. Ég hef reynt tvívegis að taka inn Metasys en líður bara hreinlega mjög illa, flökurt og svimar?

Þessi einkenni eiga oft við ef viðkomandi tekur inn Metasys án máltíðar og litlum sem engum vökva. Ef það er ekki tilfellið þá er mögulegt að þú sért með óþol fyrir grænu tei og er því ráðlegt að hætta inntöku strax. Fólk er mjög mismunandi og getur t.d. einn borðað hnetur en öðrum getur það verið lífshættulegt. Asíubúar hafa notað grænt te frá upphafi sögu og verða oft manna elstir.   Samkvæmt rannsóknum er Metasys 98% þolanlegt.

 

metasys images 021

 Metasys - Óðinsgata 1 - 101 Reykjavík - s. 5517020 - metasys@simnet.is